Nú erum við aftur flutt í húsið okkar á Holtsgötunni og það er orðið svakalegt fínt eftir miklar lagfæringar og breytingar. Við erum mjög ánægð með velheppnað verk.
Strákarnir eru byrjaðir í Öldutúnsskóla og hefur það gengið vel. Þeir eru ánægðir og eiga örugglega eftir að standa sig vel. Friðleifur jr. á stundum svolítið erfitt og saknar Englands mikið á köflum. Fannar Óli og Friðleifur leika saman enn mikið á ensku og það finnst mér bara í lagi, gleyma allavegana ekki enskunni á meðan. Bjarki Þór er byrjaður í fermingarfræðslunni og búin að mæta í eina popmessu. Þeir eru allir komnir í Haukana og æfa fótbolta 3-4x í viku. Fannar Óli hefur líka farið á nokkrar sundæfingar og vill líka fara í fimleika.
Það er búið að vera mikið að gera við að koma sér fyrir og byrja í skólanum og íþróttunum og allir verið afar þreyttir flesta morgna nema náttúrulega laugardaga og sunnudaga. Þá er tilvalið að vakna snemma og þá sérstaklega Fannar Óli.
Það er búið að fara svakalega oft í sund til leika og slaka á og líka auðvitað til að baða sig því við getum ekki notað sturtuna hjá okkar enn þá því það vantar glerið fyrir klefann. Fáum það vonandi fyrir jól.
Þar sem að við erum komin aftur hingað á Holtsgötuna þá ætlum við hætta að blogga og segja þetta gott. Bloggið var til þess að ættingar og vinir gætu fylgst með okkur úr fjarlægð en nú er það hægt úr nálægð.
Bless bless og takk fyrir.
» 6 hafa sagt sína skoðun
Norway og North Wales hljómar mjög líkt og það er ekki skrítið þó að barnið hafi aðeins ruglast. Við skulum taka okkur á og kenna börnunum okkar hvaðan fjölskyldan er ættuð og hverra manna þeir eru. Þeir verða örugglega innan fárra ára spurðir að þessu þegar þeir fara heimsækja einhverjar skvísur. En vonandi verður það ekki fyrr en þeir eru um 25 ára. Er það ekki bara fínn aldur til að fara að deita?
Það var verið birta lista yfir the worst places to live in the UK. Því miður kemur Hull ekki vel út. Hull lenti í 2. sæti (Middlesbrough í 1. sæti.) Þegar verið er að úthluta sætum á þessum lista er horft á glæpatíðni, fíkniefna notkun, heilsufarsvandamál og hversu góð menntun er í viðkomandi borg. Við erum náttúrulega afar leið yfir þessum niðurstöðum því það er alltaf verið að segja að Hull sé orðin svo góð og falleg borg, verði betri með hverju ári. En af niðurstöðunum má greinilega sjá að Hull hefur átt slæmt ár.
Síðan aðeins meiri uppörvandi fréttir sem eru ekkert tengdar þessum lista. Í útvarpinu í morgun var verið að segja frá því að tannlæknisþjónusta innan NHS sé í molum, einstaklingar þurfa að bíða í 15-16 mánuði eftir tannlæknisþjónustu. Það er víst þó nokkuð um það að fólk reyni því bara að bjarga sér sjálft með því t.d. að rífa úr sér tennur sem eru skemmdar og valda verk og einnig er superglue mikið notað til festa aftur fyllingar og brotnar tennur. Mikið erum við heppin að hafa Ingunni.
Og eitt í lokin "einn af hverjum sex er með claymidíu". Getur þetta verið?
» 8 hafa sagt sína skoðun
» 5 hafa sagt sína skoðun
Maður er nú aðeins búin að fylgjast með þessum látum á Íslandi út af Orkuveitunni og því öllu. Minni bara á að hér í UK er þetta allt í eigu einkaaðila og rándýrt að kynda og nota vatn. Því senda oft sveitarfélög frá sér leiðbeiningar til almúgans um hvernig megi spara orku og vera meira enviromental og sustainable. Hér fylgir nýjasti “Sustainable home guide” frá Hull sem gengur meira og minna út á að spara vatn (sem var þó nóg af hér í lok Júní þegar það flæddi inní meira en 10.000 heimili og fyrirtæki).
Don’t wash or shave under a running tab, instead fill the sink. A tab left running for 10 minutes will waste up to 100 litres of water.
Take a short shower instead of a bath and save 40 litres of water. Bretinn hefur nú fundið enn betri leið en þetta, því flestir kveikja á sturtunni og bleyta sig, slökkva svo og sápa sig, kveikja svo aftur til að skola af sér. Það er samt auðvitað umhverfisvænast að sleppa því alveg að fara í sturtu. Bretland er langstærsti markaðurinn fyrir svitasprey miðað við höfðatölu bara svo það fylgi með.
Don’t brush your teeth with the tap running as this wastes almost nine litres a minute. Varðandi orkusparnað (gas). Turn your thermostat down by 1°C. Most people are comfortable in a room temperature of 19°C ( ertu ekki að grínast ). This “small” change could cut your energy bill by up to 10%. OK, þú átt sem sagt að fara úr 20°C niður í 19°C en come on það er nógu kalt í 20°C enda sitja flestir inní stofu í flíspeysum við það hitastig.
Að lokum:
Maður á að safna rigningarvatni og nota það til að vökva garðinn og þvo bílinn á sólardögum. Ég vil bara sameina þetta allt: Mín tillaga er svona: Collect all your rainwater, use it to brush your teeth, throw the rest of it into the bath tub and wait for 7 days until the house has warmed it up to a “comfortable” 19°C. Then take a bath and shave as well during the bath. If you survive this then use the bath water to wash your car (since it already includes soap from your shaving foam). Finally, please use some deodorant if the forecast is sunshine for the next days.
Það var nóg um að vera um helgina. Stefán Friðleifsson og Sree komu í heimsókn en þau eru núna með annan fótinn í London. Þau skelltu sér hingað uppeftir með lestinni og eyddu helginni með okkur. Það var að sjálfsögðu farið með þau til York og svo fengu þau sinn fótboltaskammt. Liðið hans Fannars spilaði við Hessle og auðvitað unnu okkar menn. Fannar Óli skoraði glæsilegt skallamark í leiknum.
Fannar Óli, fyrir miðju, tók vel á því í leiknum.
Stefán og Sree fylgjast með Fannari Óla og Co taka Hessle í nefið.
Annars fylgir að sjálfsögðu brilliant saga af Friðleifi jr. í lokin. Hann er byrjaður í Street Dance í skólanum einu sinni í viku. Eftir fyrsta tímann spurðum við hvort að það væri ekki gaman. Jú jú sagði hann, það er rosalegt fun, steplan sem kennir er ekki "married". Nú..... hvernig veistu það ? Ég spurði bara, sagði þá kappinn. Honum leist sem sagt svo vel á kennarann að hann spurði í fyrsta tímanum hvort að hún væri "married". Hann veit hins vegar ekki hvað hún heitir..... en hún er víst með boyfriend en ekki "married" bara svo það sé á hreinu.
» 4 hafa sagt sína skoðun
Leikmenn Hull City gengu inná KC Stadium fullir sjálfstrausts þegar þær mættu Chelsea síðasta miðvikudag. Það var flugeldasýning í boði Hull fyrir leik en leikmenn Chelsea sáu hins vegar um flugeldasýninguna inná vellinum. Tigers voru sprækir í fyrri hálfleik og héldu út í 36 mínútur áður en Chelsea potaði einu inn. Seinni hálfleikur var svo dauðadæmdur eftir aðeins 1 mínútu þegar gestirnir skorðu annað mark sitt. Þá var þetta bara búið og leikurinn endaði 4-0 fyrir gestina. Það var hins vegar mjög góð stemmning á vellinum og við skemmtum okkur vel þrátt fyrir kuldann. Hér eru nokkar myndir frá leiknum.
Þá var Jesú afgreiddur. Næst kom. Hvernig movar maður the bones ? Vöðvarnir move the bones. Váaaaaaa heyðist þá í litla kappanum sem fannst þetta stórmerkilegt.
» 2 hafa sagt sína skoðun
Nú kemur það besta. Eftir langa stund er ég boðin á söngleik í Friðleifs herbergi. Þeir voru þá búnir að fara í búningadótið og finna þessa fínu búninga á sig. Fannar Óli var Mikki refur og Friðleifur Lilli klifurmús. Þeir voru svo flottir að ég stóðst ekki mátið og myndaði þá meðan þeir sungu og léku.
» 1 hafa sagt sína skoðun
Á sunnudeginum tókum við þátt í London Peace run. Þetta var 5 km hlaup í tengslum við London Peace week. Þetta var í fyrsta skipti sem hlaupið var haldið. Það tók okkur töluverðan tíma að komast í Greenwich Park þar sem hlaupið var en við náðum að mæta rétt áður en hlaupið byrjaði. Strákarnir stóðu sig að vanda eins og hetjur, kláruðu allir hlaupið og fóru létt með það. Í stað þess að veita fyrstu hlaupurunum verðlaun var ákveðið að allir krakkarnir sem tóku þátt í hlaupinu fengju verðlaun. Strákarnir okkar voru því heiðraðir sérstaklega og fengu mjög fallega penna að gjöf. Veðrið var æðislegt og frábært að við skyldum hafa skellt okkur í þetta hlaup. Svo var skundað heim á hótel, dótinu skellt í tösku og brunað til Elloughton með lestinni. Helgin tókst því í alla staði rosalega vel.
Nýkomin í mark.
Strákarnir með skipuleggjendum hlaupsins og öðrum krökkum úr hlaupinu.
Maður er nú ekkert smá stoltur af þessum gaurum. Hér sjást flottu pennasettin sem þeir fengu í verðlaun.
Við fengum okkur góðan hádegismat og tókum síðan stefnuna á Wembley stadium. Stórleikur dagsins var England – Ísrael. Wembley er rosalega flottur völlur, líkist helst hóteli en ekki enskum fótboltavelli. Maður gat meira að segja pissað án þess að bíða í langri röð en það er algjört nýmæli á enskum fótboltavöllum. Öll aðstaða fyrir áhorfendur er til fyrirmyndar. Englendingar rúlluðu þessu upp 3-0 og við fórum sátt af vellinum. Um kvöldið var svo farið út að borða í Chinatown. Strákunum finnst Chinese matur algjört lostæti og eru rosalega klárir með prjónana.........NOT (jú Bjarki sleppur).
Töffarar í Hamleys (áður en veskið týndist).
Á Wembley og þvílíkir hattar....
Wembley klikkar ekki. Frábær aðstaða.
Sumir slepptu sér gjörsamlega (áður en leikurinn byrjaði)...
Í Chinatown
Fannar leikur rostung í Chinatown. Sumum fannst það rosalega fyndið.....
Að sjálfsögðu var Leifur með myndavélina á lofti (eins og afi Frilli) og gerði ferðinni góð skil.
Hvergi gátum við séð drottninguna í öllum þessum gluggum.
Greyjið vörðurinn stóð þarna sveittur og þreyttur en við stóðumst ekki mátið og mynduðum strákana með honum. Samt vorkenndi ég honum.
Meiri uppstillingar, strákarnir elska þetta. Sérstaklega Bjarki Þór.
The River Thames og London Eye og Aðalmaðurinn Fannar Óli.
Aftur Aðalmaðurinn og Birthday kakan (bara þeyttur rjómi, súkklaðisósa og kerti) nammi namm.
Meira í vændum.
Jæja loksins eftir mikla bið er Fannar Óli orðinn 9 ára. Hann er búin að bíða eftir afmælisdeginum frekar lengi og nú síðustu tvær vikur hefur verið talið niður. Honum finnst frekar leiðinlegt að vera síðastur af okkur í fjölskyldunni til að eiga afmæli, síðastur er leiðinlegt. Og undir það getur Friðleifur jr tekið því hann segist alltaf vera last og smallest og youngest og það er unfair og boring. (gleði, gleði, gleði)
Dagurinn var tekinn snemma að vanda enda ekki mikið hægt að sofa vegna spennings. Hann opnaði pakkana sína áður en farið var í skólann (já skólinn byrjaði líka aftur í gær eftir sumarfrí okkur mæðrum til mikillar gleði, allavegana er ég glöð ). Strákarnir voru líka spenntir að hitta krakkana aftur og fara í nýja bekki. Nú eru þeir one year older og bigger. (Það eru samt bara 6 vikur síðan þeir voru í skólanum síðast) .
Eftir skóla var síðan fámennt en gott afmæli fyrir 4. Hann fékk eplaköku og súkklaðiköku alveg eins og hann hafði óskað sér. Hann er svakalega ánægður með gjafirnar sem hann fékk (takk fyrir það ). Friðleifi fannst náttúrulega gjafirnar unfair því hann vildi náttúrulega ákkúrat alveg svona eins líka................ Alltaf sama sagan, hvenær hættir þetta eiginlega?
» 7 hafa sagt sína skoðun
Er á fullu að gera hreint og fínt hjá okkur því það er "viewing" hjá mér á eftir. Ég er sem sé að fara að sýna húsið á eftir, vonandi kaupa þau. Nei það er víst full mikil bjartsýni hjá mér því mér skilst að þetta taki yfirleitt marga mánuði og fasteignasalinn sagði við okkur um daginn að það væri raunhæft fyrir okkur að vera búin að selja í desember eða janúar. En það er allt í lagi að vera bjartsýn því mér leiðist að sýna húsið, taka til fyrir einhvern sem stoppar í 20 mínútur.
Það komu hjón að skoða um síðustu helgi, karlinn sagði við konuna sína þegar þau komu inn í eldhúsið til mín "woo she keeps it nice and clean I wish you can do that" Ég varð svo fúl út í karlinn að tala svona við konuna sína fyrir framan ókunnugt fólk að ég vona að þau kaupi ekki.
Síðustu helgi var Elloughton 10 km hlaupið. Við tókum að sjálfsögðu öll þátt í hlaupinu. Óla hljóp 10 km og stóð sig gífurlega vel en við strákarnir létum skemmtiskokkið duga, en það var 3.8 km. Bjarki Þór kom okkur rosalega á óvart. Hann varð í 7. sæti í hlaupinu og í 2.sæti í sínum aldursflokki. Fannar Óli var nú ekki síðri, hann lenti í 3 sæti í sínum aldursflokki og Friðleifur Kristinn varð í 2.sæti í sínum aldursflokki. Sem sagt the fridleifssons voru ansi framarlega. Veðrið var mjög gott og svaka stemmning í kringum þetta hlaup.
Óla komin í mark og við strákarnir við það að leggja af stað í skemmtiskokkið.
Klárir í slaginn.
Bjarki Þór að koma í mark í skemmtiskokkinu.
» 9 hafa sagt sína skoðun